Upplýsingar

Spanhelluborð frá Airforce með innbyggðri viftu sameinar tvö eldhústæki í eitt og mætir þannig helstu þörfum eldhússins. Helluborðið er með samtengjanlegum hellum, tímastilli og kraftmikill vifta.



Spanhelluborð

Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.



Innbyggð vifta

Með innbyggðri viftu er einfaldara að skipuleggja eldhúsið. Innbyggða viftan sýgur gufu og lykt beint af hellunni svo það verði alltaf hrein og fersk lykt í eldhúsinu þínu.



„Zero Moisture“

Eftir að slökkt hefur verið á viftunni heldur hún áfram að vinna á lægstu hraðastillingu í 20 mínútur. Bæði til þess að tryggja uppgufun þess raka og til að eyða þeirri lykt sem eftir kann að vera eftir að þú hefur lokið þinni eldamennsku. 



Eldunarsvæði

Spanhelluborðið er með fjórum hellum en hægt er að sameina tvær hellur í eina sé þörf á stærra eldunnarsvæði. 



Stjórnborð

Með snertitakka sem er auðveldur og þægilegur í notkun. Þú einfaldlega velur helluna sem þú ætlar að nota og stillir hitastigið á henni með því að ýta á takkann.



Pottar og pönnur

Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottum eða pönnum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.



Kolafilter

Skipta þarf reglulega um kolafilter eða á eins til tveggja ára fresti. Viftan lætur vita þegar þarf að skifta um kolafilter.  



Og svo hitt

Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé að helluborðinu fyrir slysni.


Eiginleikar

Weight 25,5 kg
Dimensions 36,6 × 64,9 × 71,9 cm
Vörumerki

AIRFORCE

Orkumerking

2019A