Upplýsingar

AEG frístandandi kæliskápur sem er með lághitaskúffu, veltihandfangi og hraðkælingu. Hann er snjöll lausn til að geyma mat á hagnýtan hátt. Flottur og stílhreinn kæliskápur sem mun sóma sér vel í hvaða eldhúsi sem er.



Kæliskápurinn

Kæliskápurinn er með 390 lítra rúmmáli, fimm hillum, flöskurekka og tveimur skúffum.



Hraðkæling

Tryggir að hægt er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Hitastigið í kæliskápnum verður +2°C í sex klukkutíma og eftir það fer hann aftur í fyrri stillingu.



MultiFlow

Tryggir gott loftflæði í kæliskápnum og dreifir þannig kælingunni jafnt um kæliskápinn.



ExtraChill lághitaskúffan

Er með lægra hitastigi en restin af kæliskápnum og hentar vel til geymslu á ýmsum ferskum mat eins og fiski, kjöti, áleggi og fleiru.



Stjórnborð

Einfalt og þægilegt, þú einfaldlega ýtir á einn takka til að breyta hitastiginu í kæliskápnum.   



Lýsing

LED lýsing sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. LED perur nota mjög litla orku og eru mun endingarbetri en venjulegar perur.



Veltihandfang

Ekkert mál er að opna kæliskápinn þó svo að þú sért nýbúinn að loka honum þar sem veltihandfangið jafnar þrýstingin í kæliskápnum.



Hurðarviðvörun

Skápurinn lætur vita (pípir) ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð.



Og svo hitt

Auðvelt er að halda kæliskápnum hreinum en þú einfaldlega þurrkar innan úr honum annað slagið með rökum klút og skápurinn þinn alltaf líta út eins og nýr. Lamir eru hægra megin en hægt er að breyta hurðaropnun.


Eiginleikar

Vörumerki

AEG

Orkumerking

2019E