Upplýsingar

Glæsilegur Eletrolux kæliskápur með NoFrost tækni, LED lýsingu og hraðkælingu.



Innrétting

Skápurinn er 390 lítrar að rúmmáli. Tvær skúffur eru fyrir grænmeti og fimm hillur eru í skápnum að auki er gott gleymslupláss í hurð kæliskápsins. Þannig að þú hefur nóg pláss til að geyma matinn þinn.



Stjórnborð

Er auðvelt og þægilegt í notkun en skápurinn er með rafrænni hitastýringu sem tryggir nákvæmara kælistig í skápnum. Innbyggði LCD skjárinn sýnir þér hvaða kælistig er í skápnum.



Hraðkæling

Hraðkæling tryggir að hægt er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar kælistigið niður í ákveðin tíma og eftir það fer kælirinn aftur í fyrri stillingu.

 

NoFrost

Sjálfvirk afhríming gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afþíða kæliskápinn þinn þar sem ekki myndast hrím innan í honum og sparar þú þannig fullt af tíma. Þú einfaldlega þurrkar innan úr honum annað slagið með rökum klút og skápurinn þinn alltaf líta út eins og nýr.



Lýsing

LED lýsing sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. LED perur nota mjög litla orku og eru mun endingarbetri en venjulegar perur.



Hurðarviðvörun

Skápurinn lætur vita (pípir) ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð.



Orlofsstilling:

Ertu á leiðinni í sumarfrí? Þá getur orlofsstillingin komið sér vel. Tæmdu kæliskápinn af matvörum og virkjaðu orlofsstillinguna. Orkunotkunin minnkar og þú losnar við öll vandamál með vonda lykt.



Og svo hitt

Lamir eru hægra megin en hægt er að breyta hurðaropnun.


Eiginleikar

Vörumerki

ELECTROLUX

Orkumerking

2019E