Upplýsingar

Spanhelluborð frá AEG með notendavænu stjórnborði, samtengjanlegum hellum og „OptiHeat“. Matt svart að lit og niðurfellanlegt.

Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.

Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum og hægt er að sameina hellurnar vinstra megin í eina sé þörf á stærra eldunnarsvæði. 

Stjórnborð
Með sleðatökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú einfaldlega stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.

Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.

PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.

OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að sjóða, halda heitu eða til að velgja.

SenseBoil
Stillingin kemur í veg fyrir að sjóði upp úr pottunum.

Stop&Go
Takkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.

Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.

Og svo hitt
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé að helluborðinu fyrir slysni.

Eiginleikar

Vörumerki

AEG

Litur

Svartur matt

Gerð / Sería

Spanhelluborð

Wött (W)

7350

Aftari hægri hella, w/mm

1800-2800/180

Aftari vinstri hella, w/mm

2300-3200/210

Barnalæsing

Boostervirkni

Eftirhitagaumljós

Fremri hægri hella, w/mm

1400-2500/145

Fremri vinstri hella, w/mm

2300-3200/210

Gatmál í mm DxB

490×560

Hægt að tengja saman hellur

Já, vinstra megin

Hob2Hood

Hægt að halda heitu

Hægt að gera hlé á eldun

Nettengjanlegt

Nei

Sjálfvirk öryggisslökkvun

Tímastillir

Útskurðarradíus

510°