Upplýsingar

AEG frístandandi kæliskápur með þremur skúffum í frysti. Kæliskápurinn er með NoFrost, lághitaskúffu og MultiFlow. Hann er snjöll lausn til að geyma mat á hagnýtan hátt. Flottur og stílhreinn kæliskápur sem mun sóma sér vel í hvaða eldhúsi sem er.



Kæliskápurinn

Kæliskápurinn er með 230 lítra rúmmáli, tveimur hillum, og tveimur skúffum.



Frystirinn

Frystirinn er með 101 lítra rúmmáli og þremur skúffum. Frystigeta er allt að 8 kg á sólarhring.



NoFrost

Sjálfvirk afhríming gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afþíða kæliskápinn þinn þar sem ekki myndast hrím innan í honum og sparar þú þannig fullt af tíma og fyrirhöfn.



Hraðkæling

Tryggir að hægt er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Kæliskápurinn lækkar hitastigið í ákveðin tíma og fer síðan aftur í fyrri stillingu.



Hraðfrysting

Sem er frábær þegar frysta þarf mikið magn af mat á fljótvirkan og skilvirkan hátt.



MultiFlow

Tryggir gott loftflæði í kæliskápnum og dreifir þannig kælingunni jafnt um kæliskápinn.



ExtraChill lághitaskúffan

Er með lægra hitastigi en restin af kæliskápnum og hentar vel til geymslu á ýmsum ferskum mat eins og fiski, kjöti, áleggi og fleiru.



Stjórnborð

Inni í tækinu finnur þú hagnýtan skjá sem gerir þér kleift að stilla hitastigið á einfaldan máta. Innbyggði skjárinn sýnir þér hvaða kælistig er í skápnum.



Lýsing

LED lýsing sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. LED perur nota mjög litla orku og eru mun endingarbetri en venjulegar perur.



Hurðarviðvörun

Skápurinn lætur vita ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð.



Og svo hitt

Auðvelt er að halda kæliskápnum hreinum en þú einfaldlega þurrkar innan úr honum annað slagið með rökum klút og skápurinn þinn alltaf líta út eins og nýr. Lamir eru hægra megin en hægt er að breyta hurðaropnun.


Eiginleikar

Weight 75 kg
Dimensions 65 × 60 × 186 cm
Vörumerki

AEG

Orkumerking

2019E