Upplýsingar

Spanhelluborð frá Airforce sem er aðeins 30 cm að breidd og hentar því vel í sumarbústaði og minna húsnæði. Svart að lit og niðurfellanlegt í borðplötuna. ATH straumkapall fylgir ekki helluborðinu



Spanhelluborð

Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.



Eldunarsvæði

Spanhelluborðið er með tveimur hellum 14.5 og 21 cm að stærð.   



Stjórnborð

Með snertitakka sem er auðveldur og þægilegur í notkun. Þú einfaldlega velur helluna sem þú ætlar að nota og stillir hitastigið á henni með því að ýta á takkann.



PowerBoost

Háhitaspan er á báðum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.



Pottar og pönnur

Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.



Og svo hitt

Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé að helluborðinu fyrir slysni.


Eiginleikar

Weight 6,63 kg
Dimensions 12,8 × 41,4 × 61,4 cm
Vörumerki

AIRFORCE