Upplýsingar

Brabantia ruslatunnan hefur flott og stílhreint útlit. Hún er 7 lítra og hentar vel fyrir t.d. blandað rusl og lífrænt.



Þægindin

Ruslatunnan er með slétt bak og passar upp við vegg.



Opnun

Þú þarft bara rétt að lyfta upp lokinu til að hún opnist.



Þrifin

Innri fata tunnunar er laus og því ekkert mál að taka hana úr til að þrífa. Að utan þurrkar einfaldlega yfir hana með rökum klút



Pokar

Í þessa ruslatunnu eru notaðir B pokar og eru 20 stykki á rúllu.



Endurvinnsla

Hún er úr 52% endurunnu efni og eftir lífdaga hennar verður 98% hennar endurunnið. Hún er Cradle-to-Cradle® vottuð.



Og svo hitt

Eitt 7 lítra hólf er í tunnunni. 



Brabantia

fyrirtækið var stofnað árið 1919 í hollenska bænum Aalst í Brabant-héraði. Í upphafi framleiddu þeir mjólkurdósir og könnur en með árunum fjölgaði framleiðsluvörum þeirra. Ruslatunnur hafa verið stór hluti af þeirra framleiðslu í gegnum tíðina, en sú fyrsta af þeim leit dagsins ljós árið 1952. Brabantia framleiðir einnig vörur fyrir eldhús, þvottahús og baðherbergi. Þannig að í meira en 100 ár hefur Brabantia framleitt fallegar og stílhreinar vörur sem sóma sér vel á hvaða heimili sem er.

 


Eiginleikar

Þyngd 2,03 kg
Ummál 24,3 × 29,8 × 33 cm
Vörumerki

BRABANTIA