Upplýsingar


  • 320 ml drykkjarflaska með tvöföldu gleri og þéttu bambusloki.

  • Hentar vel fyrir þá sem vilja taka heitt te með sér eða niðurskorna ávexti og grænmeti.

  • Þú ákveður hversu lengi þú lætur teið liggja í flöskunni og notar til þess aðra hvora síuna en tvær síur fylgja með.



Notkun síu

Flöskunni fylgja tvær síur fyrir sitthvora síunaraðferðina allt eftir tegund drykkjarins, lengd síunnar og/eða smekk manna 




  • Lengri sían gefur styttri síunartíma eftir þörf hvers og eins þar sem auðvelt er að fjarlægja síuna með bragðgjafanum.

  • Með styttri síunni færðu langt og stöðugt innrennsli bragðgjafans, eins og kínversk hefð segir til um.



Notkunarleiðbeiningar




  • Setjið hvorki í örbylgju- né bakarofn

  • Frystið ekki

  • Setjið ekki meira í flöskuna heldur en leiðbeiningar segja til um

  • Til að forðast leka, passið að skrúfa lokið rétt og þétt á 

  • Varist að börn leiki sér með flöskuna ef heitir drykkir eru í henni

  • Setjið ekki kolsýrða drykki í flöskuna þar sem þrýstingur getur margfaldast

  • Geymið ekki brjóstamjólk í flöskunni

  • Geymið flöskuna opna á milli notkunnar



Umhirða




  • Þvoið alla hlutana með sápuvatni fyrir notkun. Skolið vel og þurrkið

  • Fyrir enn ítarlegri þrif mælum við með því að þvo ílátið með þvottabursta, heitu vatni og teskeið af matarsóda

  • Ef þurfa þykir, látið liggja í bleyti í nokkra klukkutíma fyrir skolun

  • Notið ekki þvottarefni sem innihalda bleikiefni, klór, fægilög (svarfefni) eða/og sterk hreinsiefni

  • Við mælum með handþvotti


Eiginleikar