Upplýsingar

Electrolux Create 5 kaffivélin er stílhrein, öflug og fljót að hella upp á. Hægt er að stilla kaffivélina fram í tímann og þú vaknar upp með fullkomið kaffi í hverjum bolla!!



Uppáhellingin

Vélin dreifir vatninu jafnt og vel yfir kaffið og nær því að nýta það betur. Dropastoppari svo að hægt er að taka könnuna úr á meðan vélin er enn að hella uppá. Hægt er að hella uppá allt að 10 bollum. Kaffihiti eftir uppáhellingu er 80°C.



Vatnstankur

Vélin er með 1,375 lítra vatnstank sem dugar til að hella uppá 10 bolla af kaffi. Hún er með vatnshæðamælir, þannig að þú sérð hversu mikið magn af vatni þú ert að setja í tankinn.



Aroma Selector

Stilltu styrkleika eftir smekk og njóttu þess að drekka fullkominn bolla af kaffi með þeim kaffistyrkleika sem þér hentar.



Sjálfvirkur slökkvari

Bæði af öryggisástæðum og til að spara orku þá slekkur kaffivélin sjálfkrafa á sér eftir 40 mínútur.



Hönnun

Glæsileg og nútímaleg hönnun sem passar við hvaða eldhús sem er.



Og svo hitt

Kaffikannan er auðveld og þægileg í notkun og þrifum. Glerkönnuna  má setja í uppþvottavél.


Eiginleikar

Vörumerki

ELECTROLUX